28febrúar

Ný síđa er komin

Jæja ég er búin að gera nýja síður fyrir Anítu mig langar að hafa hana soldið leyndó þannig að þeir sem hafa áhuga á að lesa um Anítu eða skoða myndir þá er ég hér með hætt með þessa síðu og fólk þarf að hringja i mig eða unnar til að vita síðuna þar eru video á síðunni og fleira dúlló :D:D  siminn hjá Siggu 8666373 siminn hja Unnari 8495996

28. febrúar 2007 klukkan 21:37
Sigríđur Erla Hákonardóttir
Engin athugasemd
12júlí

Halló

Hæ vill einhver gefa mér digital myndavél í tvítugsgjöf eða Anítu eða eitthvað!!!! myndirnar eru svo óskýrar!!! hehe en jamm annars er allt gott að frétta Aníta hjalar og hjalar hún hló víst upphátt hjá Olgu systir og ég var einhversstaðar að kaupa ferskjur með Unnari við vorum á laugarvatni og fórum í bíltúr í Sólheima á afmælisdaginn hans Sigga þar sem fatlað fólk býr til alskonar dótarí og ræktar grænmeti og ávexti svo fórum við í dýragarð það var gaman Unnar og Villi fóru að veiða og Unnar veiddi 3 en Villi engann ég for einu sinni að veiða nennti ekki aftur það var allt útí mýri. Mig langar helst að vera fyrir austan í allt sumar!!!! en ég fór með Anítu til læknis að tjékka á eyrunum og það var allt í lagi með allt þarf ekki að hafa áhyggjur en já Munaðarnes ferðin var mjög skemmtileg Aníta tók alveg svakalegt vaxtarstökk og þurfti meira gaf henni graut í fyrsta skipti þar en svo núna þarf hún engan graut hún er búin að vaxa uppúr tveim náttfötum það er ekkert annað. Jájá og Unnar er búin að fá sér tattoo já held ég hafi ekki fleiri fréttir að færa í bili skrifið í athugasemd ef þið viljið vita eitthvað eða spurja um !Hlæjandi

12. júlí 2006 klukkan 20:37
Sigríđur Erla Hákonardóttir
5 athugasemdir
20júní

Kveldiđ

Jæja nú erum við búin að fara til Akureyrar það var sko geggjað gaman !! allavega á laugardagskvöldinu en nú er vikan að líða og mér leiðist Unnar er alltaf að vinna og ég bíð bara alltaf eftir að helgin komi svo hann sé í fríi og svo við getum farið út á land. Aníta er búin að taka alveg rosalegan vaxtarkipp fór með hana í skoðun í dag hún er orðin 5 kíló og læknirinn sagði að hún væri mjög fín og stælt og fljót líka að brosa og svoleiðis en þegar hún er orðin 3 mánaða þá fer hún í sprautu ég ruglaðist. Hún er farin að stækka úr sumum fötum þetta er svo fljótt að líða. En eftir tvo daga förum við í sumarbústað í Munaðarnesi það verður fjör. Á morgun förum við í afmælið hans Hilmir það verður gaman en nú er ég farin að elda matinn bless bless.......

20. júní 2006 klukkan 22:51
Sigríđur Erla Hákonardóttir
Engin athugasemd
12júní

Langt síđan ég bloggađi

HlæjandiHÆHÆ það er allt gott að frétta hjá okkur fórum í fyrsta tjaldferðalagið á laugavatn til Olgu og sváfum í tjaldi bara eina nótt og fórum svo inní bústað til Olgu næstu nótt. Aníta er farin að brosa svo mikið að hún er næstum farin að hlæjaBrosandi hún hefur þroskast svo mikið munur með hverjum deginum. En 17 júní helgina förum við til Akureyrar í bústað hjá Sigga vin Unnars það verður ágætt og viku eftir það í bústað í Munaðarnesi með Villa, Önnu og börnum og mömmu í eina viku það verður stuð mikið að ské og16 júní fer Aníta í sprautu og ég fer í keisara skoðun 15 það er sko margt að gerast framundan núna eru mamma og pabbi unnars úti í Ítalíu og koma eftir 2 vikur en nú kveð ég endilega skrifið í athugasemd ef þig viljið vita eitthvað meira eða eitthvað..

 

P:S. ég þarf að fara í megrun vill einhver vera memm

12. júní 2006 klukkan 20:49
Sigríđur Erla Hákonardóttir
4 athugasemdir
12maí

Hć:D

Ég er svo ánægð með þessa snúllu að það hálfa væri nóg Brosandi það gengur svo vel hjá okkur og ég svaf alveg svakalega vel í nótt hún rumskaði ekki. Hún er búin að fá svo mikið að gjöfum en já endilega kíkið í heimsókn Hlæjandi það væri gaman hef hvort sem er ekkert að gera á daginn okey hef ekki mikið að segja nema allt er frábært
12. maí 2006 klukkan 19:26
Sigríđur Erla Hákonardóttir
Engin athugasemd
02maí

BULL

Það virkar sko ekki að hlaupa eða labba eða skokka eða sippa er búin að prufa þetta en eitt virkar og það er leyndo en oki ég er orðin þreytt og íllt í bakinu og allir að bjóða mér eitthvað í bíó eða heimsókn ég bara nenni því ekki vill bara vera heima og bíða er orðin leið á þessu
02. maí 2006 klukkan 23:48
Sigríđur Erla Hákonardóttir
1 athugasemd
30apríl

ER ORĐIN LEIĐ Á AĐ BÍĐA

HVAÐ Á ÉG AÐ GERA SVO BARNIÐ KOMI ER KOMIN MEÐ HARÐSPERRUR Í LAPPIRNAR ÚT AF ÖLLUM ÞESSUM GÖNGUTÚRUM OG ÆFINGUM ER BÚIN AÐ VERA AÐ NOTA TILRAUN SEM ER AÐ BEGJA MIG UPP OG NIÐUR OG VERÐ ALVEG DAUÐ ÞREYTT EFTIR Á OG SVO VERÐUR BUMBAN GLERHÖRÐ EINS OG HÚN SÉ AÐ VERJA SIG Öskrandi KODDU ÚT
30. apríl 2006 klukkan 20:58
Sigríđur Erla Hákonardóttir
1 athugasemd
29apríl

HćHó

Góðan daginn það er ekkert að ské.. en í gær var alveg frábær dagur Hlæjandi geggjað veður og læti Dagmar kom til mín og gaf okkur gjöf Glottandi  svona poka sem maður setur á sig sem barnið fer í þá getur maður farið út að labba en svo gaf hún mér 6000 kr inneign í babysam í smáranum Brosandi hlakka svo til að fara að versla en svo kom Stína í heimsókn og gaf okkur kertastjaka ótrúlega flottann Hlæjandi og mömmu líka.. Unnar ég og Dagmar fórum svo á American Stile mmm og svo í jeppaferð til að flíta fyrir barninu eftir það fórum við til Dagmars að spila Monapoly þetta var skemmtilegt hef ekki skemmt mér svona vel lengi Svalur
29. apríl 2006 klukkan 19:34
Sigríđur Erla Hákonardóttir
Engin athugasemd
27apríl

:D

Það er fullt tungl kl 19 : 46 sirka í kvöld og ég ætla að láta þetta koma !!!! en oki ég fór í skyndihjalparfræðslu í gær það var gaman fullt af litlum krílumHlæjandi svo krúttleg og þá komst ég að því að það væri betra að börn skorði sig ekki fljótlega því þá verður höfuðið á börnunum alveg kúlulaga en ef þau skorða sig þá verður það langt egglaga höfuð Ullandi mitt barn fær kúlulaga sætt höfuð Brosandi
27. apríl 2006 klukkan 17:44
Sigríđur Erla Hákonardóttir
2 athugasemdir
25apríl

Er sveitt í lófunum

HÆHÆ held að það sé eitthvað að ské ég fór með Unnar út að labba í gær í kring um Hvaleyrarvatn það var orðið dimmt og ég var mjög mirkfælin, við löbbuðum mjög rösklega og þegar við vorum komin heim þá var mér íllt í mjöðmunum og allt í lagi en svo um kvöldið byrjaði barnið að vera alveg trillt sparkaði og sparkaðiHlæjandi og bumban varð mjög hörð og ég fékk smá verki ekki mikla en jamm þegar ég vaknaði í morgun þá var ég eitthvað skrítin í æstu skapi og var eitthvað að röfla en síðan vildi ég fara að taka til í hvelli en svo sagði ég við mömmu að ég væri svo sveitt í lófunum og þá sagði hún mér að hún varð svona rétt áður en hún varð veik þetta er skítið vona að það fari að koma að þessu !! Þögull sem gröfin

25. apríl 2006 klukkan 18:32
Sigríđur Erla Hákonardóttir
3 athugasemdir

Auglýsing

Könnun

Finnst ykkur ađ ég ćtti ađ setja oftar myndir inná síđuna ??